Vitleysan
12.02.2008 22:47:51 / nina

Góð helgi liðin

Síðasta helgi var vægast sagt mjög góð

Hún byrjaði á stelpukvöldi heima hjá einni vinkkonu minni sem að ég er að vinna með þar sem að við sátum á spjalli með gos og nammi og lituðum og plokkuðum okkur, í góða veðrinum sem ða var úti

Á laugardaginn fór ég í rvkina þar sem va eftir nokkrar búðir haldið á Hótel Sögu og gert sig kláran fyrir árshátíðina hjá MS. Þegar allir voru tilbúnir og komnir upp í rútu var haldið á Broadway þar sem að veislan átti að vera. Þegar þessi dýrindis matur var búin og skemmtiatriðin  líka sem voru flest öll góð að þá var ball með hljómsveitinni Spútnik sem ða kom soldið á óvart því að ég bjóst við verra. Við vorum nú samt komin upp á hótel klukkan hálf tvö þar sem að allir sem að ég var með vildu fara þá og þá hófst partý á herberginu mínu sem að stóð til að verða hálf sex að mig minnir því að ég var orðin svo full að tíminn gæti verið eitthvað vitlaus hjá mér.

Það sem að mér fannst samt fyndnast af þessu kvöldi er þegar kærasti einnar stelpu sem ég er að vinna mér kom til mínút af því að ég á víst að vera sú manneskja sem ða allir hlusta á þarna inni og hlýða :$  hann var að koma til mín af því að við eigum að vera betri við hana af því að hún er ólétt og getur því ekki gert allt sem á að gera þarna inni.... Mín rök fyrir því að ég sagði honum hálfpartinn að eiga sig eru sú að hún hefur ekki enn komið fram til okkar og sagt okkur að hún sé ólétt og hún er búin að vera að segja öllum að þó að maður sé óléttur að þá sé maður ekki veikur og geti því gert allt sem að eigi að gera :S af hverju eigum við þá að ganga á bak við hennar orð núna þegar að hún er ólétt. Reyndar sagði ég honum það að um leið og hún myndi koma fram við okkur af virðingu að þá myndum við gera það sama en eins og er að þá erum við flestar minna virði en hundaskíturinn undir skónum hjá henni svo að sjálfsögðu gerum við ekkert fyrir hana sérstaklega þá ekki við íslensku stelpurnar þar sem að hún er ekki íslensk en nú vil ég samt ekki hljóma eins og einhver rasisti en mér finnst samt eins og að útlendingarnir hér á Íslandi eigi að bera nokkurn veginn sjálfsagða virðingu fyrir okkur þar sem að það erum við sem að erum að bjóða þeim í okkar land en ekki öfugt

en læt þetta gott í bili

se´yall later 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 21:23:04 / nina

Ævintýrið

Jæja, það rættist svo heldur vetur úr helginni eftir allt saman.

Á föstudaginn kíktum ég og kallinn til vinar okkar og sátum á spjalli fram eftir kvöldi. Á laugardaginn var okkur boðið í afmæli, mig langaði eiginlega ekkert að fara og var farinn að hugsa um að láta silja mig eftir hjá vinkonu minni í Rvk. þegar að ég komst að því að afmælið var í Keflavík, jæja jæja, ég fór í afmælið en stuttu eftir að við komum þangað hringdi vinkona mín að spurja um hvað ætti að gera um kvöldið og eftir stutt samtal var það ákveðið að hún skildi ræna mér úr afmælinu og fara í bæinn. Vinkona hennar kon með henni að sækja mig og við förum heim til vinkonunnar og kærasta hennar og sátum á spjallinu þangað til kallinn kom að sækja mig á leiðinni heim, við kíktum við á bar sem að vinur okkar er að vinna á og eftir stutt stopp þar var ákveðið að fara að halda heim á leið þar sem að það leit út fyrir að vera að versna ansi mikið í veðri og okkur langaði ekki að festast einhversstaðar á leiðinni. Þegar að við erum komin að ltilu kaffistofunni kemur allt í einu þessi risastóri skafl sem að fer fyrir allan veginn og við missum stjórn á bílnum. Eftir að hafa náð að losa bílinn(sem var reyndar ekkert mjög erfitt) keyrðum við á kaffistofuna og létum vin okkar vita af því að væri ófært og ég hringdi í vinkonu mína og fékk lánaða íbúðina hjá vinkonu minni þar sem að hún var ekki heima sjálf og lagt af stað aftur í Rvkinar eftir að við komum heim til hennar var sest niður og sötrað nokkra bjóra til að róa sig almennilega niður eftir keyrsluna og svo var farið að sofa. Þegar að við vöknuðum í morgun ætluðum við að fara strax af stað en það breyttist nú heldur betur, Veðrið snælduvitlaust allt lokað og við öll farin ða vilja komast heim í tannbursta og sturtu (samt meira svona hrein föt þar sem við höfðum sturtu aðstöðu þar sem að við gistum). Allavega rétt fyrir sex í dag var koksins lagt af stað heim á tvem bílum í samfloti og gekk heimferðin hægt og rólega en örugglega, við fórum yfir heiðina þrátt fyrir að það stæði að hún væri lokuð en það voru svo margir bílar á ferðinni og við ákváðum bara að reyna það og sjá hvað myndi gerast. Rétt rúmlega sjö vorum við öll komin heim (LOKSINS) og farin að lagfæra okkur. 

Ég vona að þið njótið lestrarins því að þetta var mjög góð helgi þrátt fyrir að ég hafi ekki komist til Árnýjar 

Kærar þakkir enn og aftur Ágústa fyrir afnotin af íbúðinni, við elskum þig öll 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 16:04:42 / nina

Það sem er nýtt síðan síðast

Jæja, það eru enn ekki komin svör úr vinnumálunum þar sem að ég komst ða því í samtali við stöðvarstjórann að hann vissi ekkert um hvað maðurinn var að tala :S.

Annars er það nýtt að ég er byrjuð í skóla (eða svona), ég ákvað að skrá mig í fjarnám til að halda áfram með eitthvað og þá sérstaklega íslenskuna og er ég því byrjuð í versló í því. Fékk fyrsta verkefnið í fyrradag og gerði það í gærkvöldi en það voru spurningar úr fyrstu 40 köflunum í Snorra-Eddu. Mesta furða hvað ég man þetta allt saman síðan að ég var í þessari íslensku síðast.

Ég og Fúsi ætluðum að fara norður til Ánýjar og Helga núna um helgina og með réttu ætti ég að vera farin af stað en sökum þessa helvítis veðurs sem er búið að vera í dag var ákveðið að fresta þessu um einhvern tíma :(  Ég var farin að hlakka geðveikt til að fara loksins og sjá húsið sem þau eru búin að koma sér fyrir í og hitta Árný aftur (hef ekki séð hana síðan um jólin), en það verður víst bara að hafa það. Það kemur helgi eftir þessa helgi og þá verður kannski betra veður (vonandi), annars er ég svona farin að plana stopp hjá henni í sumarfríinu hjá mér því að ég skal komast af suðurlandinu um þetta sumar :$, það verður reyndaqr alveg típísk mín heppni að þá þegar að ég verð í sumarfríi að þá verður hún ábyggilega hér sjálf í fríi

Hvað á að gera um helgina? Mig vantar hugmyndir þar sem að mín skemmdist 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 20:05:29 / nina

Höldum áfram

Jæja góða kvöldið frúr og herramenn!!!

Ég var að fá fréttir áðan og á mánudaginn sem að ég þarf að ákveða hvort eru góðar eða ekki og mig vantar smá hjálp við það ef þið vilduð vera svo góð :D:D:D

Þannig er að ég hefur verið boðin önnur vinna, hérna á Selfossi. Það byrjaði á því að ég fór í N1 á mánudaginn til að kaupa sígó svo sem ekki frásögu færandi en maður sem er að vinna þar spyr hvort að ég sé til í að taka næturvaktirnar með honum í sumar. Hann verði yfir og stöðvarstjórinn sagði honum að ráða hvern hann fengi mér sér, og hann vildi mig :^)(ég tók nokkrar vaktir þar á síðasta ári).Ég sagðist ætla að fá að skoða og hugsa málið aðeins eins og hvort ég gæti fengið að taka frí yfir allt sumarið og svon... Nema hvað ég fer aftur þar inn í dag og giskiði nú, hann er aftur að vinna og fer að tala við mig um þetta og þá segir hann mér að stöðvarstjórinn hafi verið að tala við hann um mig ogstöðvarstjórinn hafi þá sagt við Friðleif að það væri líka í boði fyrir mig að taka við Vaktstjóra stöðu núna í byrjun apríl eða mai þar sem að einn er í fæðingarorlofi og önnur er að hætta núna í mai.... Núna koma kostir og gallar. Kostir: Ég losna úr MS en ég er orðin geðveik á að vera þar, ég fæ launahækkun sem að gæti orðið allt að 40-50 þús á mánuði, ég fæ meiri tíma upp á að geta haldið áfram í skólanum það er að taka ísl og sál,á morgunvöktunum er ég búin um 3 leytið kannski 4 ef það er mikið uppgjör Gallar: Ég fæ ekki sumarfrí með strákunum, þetta er meiri vinnutími yfir mánuðinn, mun meiri ábyrgðarstaða, ég byrja morgunvaktirnar fyrir klukkan 7 (ég veit ekki hvort að þið munið að ég er labbandi). Ég veit ekki hvað ég á að gera því að frí vaktirnar koma ekkert endilega upp á helgum og á meðan að strákarnir búa í Rvk  að þá hitti ég þá náttúrulega bara á helgum það gerir þetta að mestu vandamáli fyrir mig:( Mig langar í þessa vinnu en hvernig get ég bætt strákunum það upp þegar ég er að vinna helgarnar sem að strákarnir eru hjá mér?????:!:

Með von um hjálp frá lesendum mínum að þá væri gaman að heyra ykkar skoðun á hvað þið mynduð gera svona til að hjálpa mér að mynd mína skoðun (þó að það eigi ekki að vera sollis):$

En hér koma aðrar fréttir ég er að fara á árshátíð núna 9 feb í Rvk á Brodway, gisting á Hótel Sögu og allur pakkinn kostar mig og kallinn heilar 2000 kr. og það er með borðvíni ....

Tala við ykkur síðar

lov´ya gæs 


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 15:21:59 / nina

langt síðan síðast

Það er orðið lant síðan ég lét heyra í mér síðast svo að ætli það sé ekki komin tími á að skrifa eitthvað

Jólin voru góð, róleg í flesta kanta. Strákarnir komu til mín á jóladag og fóru aftur á þrettándanum þannig að ég er mjög sátt.:o

Núna er ég bara farin að vinna aftur og það er bara fínt að vera aftur komin í vinnunna... Það kom upp stórt hneyksli á miðvikudaginn þegar a ðþað uppgötvaðist að ein sem að fór heim veik á mánudaginn  fannst aftur á Kanarí (við hinar erum ekki alveg sáttar við hana) veit samt ekki hvort að yfirmennirnir vita af þessu því að hún var í veikindafríi en ekki fríi ef þið skiljið hvað ég á við :S

Þessi helgi var nú bara nokkuð róleg. Nokkrir vinir mínir og Rafás komu í heimsókn á föstudaginn og var mikið fjör til hálf tólf en þá fóru allir heim og við kíktum til annarra vina okkar og þaðan á krúsina en komum akkúrat þegar að það var verið að loka svo að við fórum bara heim að sofa. á laugardaginn átti ég að fara í reykjavík á djammið með Ágústu en hún var svo blönk að hún bakkaði út svo að ég sat heima yfir imbanum með nammi í staðinn, þannig að nokkuð róleg helgi hjá mér. Núna í dag er planið að fara loksins að taka niður jólaskrautið (já ég er ekki enn búin að taka það niður).

Hvernig var annars helgin hjá þér? 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 01:06:27 / nina

Ég nenni þessu ekki

Góða kvöldið. Hvað er að frétta?

Ég fór til læknis í dag (sem er svo sem ekki frásögu færandi) til að láta sprauta mig Geri það á þriggja mánaða fresti) og ákvað í leiðinni að láta tékka á þessu kvefi, vildi bara útiloka að ég væri með lungnabólgu, bronkítis eða strephtokokka þar sem að ég er svo gjörn á að fá þessar sýkingar eða baktereíur eða hvað þetta nú kallast!!! Ég tala við þær í morgun en þær segja mér að ég verði að koma aftur um kvöldið á vaktina ég var nú ekki alveg sátt við það þar sem að það er flensufaraldur í gangi en ákvað nú samt að hlíða, og viti menn ég sat í tæpan einn og hálfan tíma við að bíða eftir lækni til að sitja inni hjá honum í fimm mínútur og fá að heyra að ég er með bronkítis og komin í vinnubann jafnvel út þessa viku :|:(:cry::cry:  Ég get þá kannski farið að gera eitthvað tilbúið fyrir jólin á meðan þannig að þetta er kannski ekki alslæmt :$

Síðasta helgi var annars mjög góð, þið eruð náttúrulega búin að heyra frá föstudeginum (ef ekki að þá er það bara aðeins neðar). Á laugardaginn var það svo jólahlaðborðið á Hótel Selfossi, maturinn var mjög góður (takk Fúsi já og allir hinir líka) og skemmtiatriðin líka í fínasta lagi. Fórum samt snemma heim og sátum hjá tengdó langt eftir öllu (þar sem hún býr í sama stigagangi og ég að þá tel ég mig nokkurn veginn vera heima). Hún átti svo afmæli á sunnudaginn svo við fórum aftur til hennar í kaffiboð með dýrindis kökum og öðru þílíku góðgæti. Þar með er hún búin. Sem sagt nóg að gera og allt gott og gaman.

Ég ætla að láta þetta nægja í bili er orðin þreytt og er að hugsa um að leggjast yfir flóttamanninn eftir Stephen King þangað til ég sofna (ef ég get, miðað við hina bókina sem ég á eftir hann)

Góða nótt sofið róttt og megi ykkur dreyma vel :) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 11:40:43 / nina

framhald af fyrri færslu

Jæja, ég skrifaði helgin framundan en skrifaði svo ekkert um það hvað væri framundan.... Heglin byrjaði sem sagt á krúsinni í gær og svo í kvöld er jólahlaðborð með vinnunni :) Það besta er að Fúsi er að vinna í dag þannig að ég get böggað hann soldið :lol: Hlaðborðið er semsagt á Hótelinu og hann er kokkur þar. Ég hugsa að morgundagurinn verði nú bara rólegur í anda fyrsta í aðventu. Læt kannski heyra í mér á morgun um hvernig það fór allt fram..

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 02:53:29 / nina

helgin framundan

Jæja, næstqa færsla. Þið verðið að afsaka ef skriftin er ekki nógu góð en ég er ekki það sem hægt er að sgja edrú þegar þetta er skrifað.:lol::lol::lol:

Þannig er að ég var í mestu rólegheitum hjá Evu vinkonu þegar hann Fúsi bróðir minn hringir í mig og segir mér það að við séum að fara á kaffi krús(sem er orðin by the way eini barinn á selfossi) sem er í góðu lagi, hann segir mér að gera mig tilbúinn, panta taxa og koma til mömmu því að hann sé þar eftir vel heppnað jólahlaðborð hjá þeim.

Ég kem þangað og við sitjum á spjallinu en ég kem þangað um miðnættið og við drekkum einn bjór saman, þegar hann er búinn förum við að reykkja og svo panta ég taxa (aftur) til að fara á krúsina við enduðum á að bíða í 1,5 klst. eftir honum sem er frekar mikið þar sem að ég vissi fyrirfram að það væri ekkert of mikið að gerqa hjá þeim. Nenni ekki að kvarta undan því, enda allt í góðu. Við erum komin á krúsina klukkan korter í 2 og njótum restinnar af kvöldinu. En ég hef samt geðveikar áhyggjur af mömmu, ég get ekkert farið nánar út í það en mig vantar að ná að losna við mín vandamál svo að ég geti tileinkað mig algjörlega að mömmu og líka mjög mikið honum litla bróður mínum því að það er eitthvað mikið á seiði hjá honum sem að er ekki eitthvað  lítið :(:cry::klikk: 

Læt þetta gott heita í kvöld og leit heyra fljólega í mér heyra aftur

P.S ef að þið örfáu lesendur mínir hafið ekkert að gera á pálmasunnudag að þá vantar mig hjálp þá og þið getið kannski ýmindað ykkur hvaða það er miðað við dagsetningu :):):):D 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 22:02:30 / nina

Prufa

Ég vildi bara sjá hvort þetta virkar ennþá því að ég skrifaði langa ritgerð hérna um daginn en hún kom ekki inn af eihverrri ástæðu.

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 14:37:52 / nina

Ég er mesti auli í heimi

Slysadögum mínum virðist ekkert ætla að linna, gærdagurinn var eitt ellsherjar slys út í gegn.
Ég mætti í vinnuna í gær eins og vera ber og þar sem það var mánudagur að þá eru stimplarnir þrifnir á vélunum. Vinkona mín sem er með mér á vél kunni það ekki svo ég sýndi henni það en þegar ég var að þurka stimpilinn fæ ég dropa af efninu sem maður notar í augað á mér og þvílíkur ands... sársauki... jæja, jæja, ég held áfram er eineigð í smátíma en lagast fljótt. Þegar verið er að leysa af í kaffi að þá kemur ein til að leysa þessa vinkonu mína af, hún er ekki búin að vera á vélinni nema í svona tíu mínútur þegar hún tekur grind og ætlar að færa hana því hún var tóm og keyrir óvart á mig, ég fann frekar fyrir því fyrst en það voru ekki nema nokkrar mínútur. Rétt fyrir hádegismat á þá klikkar vélin eitthvað og ég fer í að laga það nema að þá lemur vélin mig (það eru fullt af örmum á henni sem að skjótast út til að færa bakka og dósir). ég er að fá þennan líka fína marblett á upphandleggsvöðvann hægra megin eftir það. Einhversstaðar í millitíðinni tekst mér líka að reka mig í vélina með þeim afleiðingum ða ég er aðeins bólgin og marin fyrir neðan hnéð.
Svo líður dagurinn í ágætis ró eftir það fyrir utan að vélin gengur eins og andsetin belja það sem eftir er. Þegar við erum loksins búnar á vélinni förum við að þrífa, þegar ég er nýbyrjuð þá er einn staður þar sem ég verð að þrífa með hægri hendinni og þeir sem að þekkja mig vita að það kemur aldrei vel út ;), nema hvað að ég missi hendina af svæðinu sem að ég er að þrífa með þeim afleiðingum að olnboginn hægra meginn fer í skynjara á hurðinni og ég er núna stokkbólgin og marin með þetta fína sár þar. Blæðir nógu mikið til að buxurnar mínar (sem eru hvítar by the way) eru farna að litast nokkuð á lærinu. Jæja, svo er ég búin að þrífa og er að ganga frá grindum þar sem ég veit ekki alveg hvað ég á að gera meðan ég bíð eftir að strákurinn sem er í afleysingum klárar að þrífa róbotinn sem er á vélinni svo það er hægt að þrífa gólfið. Ég er að fara með grindur fullar af jógúrti inn á kæli semsagt. Er búinn að fara nokkrar ferðir (meira að segja að þetta er sú síðasta), veit orðið alveg hvernig kælirinn lítur út að innan og labba því aftur á bak en er samt með höfuðið hálfsnúið en greinilega í vitlausa átt því að það kemur grind full af abt í áttina að mér og ég sé hana ekki því að  ég er náttúrulega að horfa í hina áttina og klemmi handabakið á mér á milli, strax og þeð gerist missi ég allann mátt í hendinni á mér og hún dettur bara niður með síðunni á mér (vá hvað mig langaði að öskra þá) ég er náttúrulega svo pen (stunum) að ég sleppti því. Kláraði að ganga frá grindinni og fór út af kælinum. Labbaði því næst inn á skrifstofu hjá verkstjóranum og inn kemur einn á eftir mér sem að er kunningji minn og vinur kallsins hann fer strax og sækir kælikubb til að kæla hendina á mér og svo situr hann hjá mér og talar við mig meðan mesti verkurinn líður úr, sendir mig svo inn til eins yfirmannsins og þaðan er ég send á sjúkrahúsið.
Ég fór nú reyndar ekki þangað því þegar þangað var komið var klukkan orðin hálf sex og það voru að minnsta kosti 11 manneskjur á undan mér, strákarnir mínir heima og ekki til neinn kvöldmatur. Sá svo þegar aðeins legnra leið a ég er ekki brotin en hef líklegast marið beinið í handabakinu á mér.
En læt þessa vælusögu hætta hér þar sem ég verð að fara út í búð svo það verði einhver matur í kvöld.
Sí jú... Klaufabárðurinn

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 22:44:18 / nina

and life goes on

Er hægt að deyja úr þreytu??? Hef verið að velta þessu fyrir mér því ég held ég sé akkúrat að því!!! Það er alveg sama hversu mikið eða lítið ég sef ég er alltaf jafn þreytt, þetta getur ekki veirð vítamínskortur því að ég er farin að taka vítamín ásamt því að ég er að borða vítamínríkt fæði alla daga. Er að vinna í Mjólkurbúi og fæ fríar þær mjólkurvörur sem við framleiðum (sem að eru nánast allar):D. ég er jafn þreytt fyrir og eftir helgi (nota bene ég er ekki að vinna um helgar). Veit ekki alveg hvað gengur að mér, ég er meira að segja farin ða standa mig ða því að vera farin að dotta standandi í vinnunni ef ég stoppa í meira en tvær mínútur. Þetta er eiginlega ekkert sniðugt finnst mér 8l En út í aðra sálma, veit ekki alveg hvað ég á að segja er bara að bíða eftir að strákarnir sofni og svo ætla ég að draga kallinn upp í rúm og fara að sofa. Já, strákarnir eru komnir til mín í sumarfrí verða hjá mér út þennan mánuð, spurning hvort að maður eigi þá nokkuð eftir að slaka á um helgar þvi að við eigum líklegast eftir ða vera á þvælingi og í útilegum sem er náttúrulega bara gaman :lol: Þeir eru búnir að vera að suða um útilegu síðan þeir komu (hafa víst ekki veirð á nógu miklu flakki með Gunnari og Ásu) Gunnar Bjarni litli bróðir er barnapían mín í sumar og strákunum líkar það mjög vel. Læt þetta gott heita af mér í bili reyni að haf astyttra í næsta skipti Jónsý út

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 22:31:28 / nina

Life is a bich and then you die

Það er orðin töluverður tími síðan ég hripaði eitthvað niður síðast sýnist mér.
Hef reyndar ekkert verið á netinu yfir þetta tímabil.
Er í einhverju bölvuðu þunglyndi akkúrat núna, stafar aðalega af þreytu og því að ég er búin að vera með nístandi höfuðverk síðan á sunnudagskvöldið. Veit ekki alveg af hverju það er. :( Myndi fara til læknis ef ég hefði efni á því
Að öðru leyti er flest allt gott að frétta af mér og mínum. Veit alla vega ekki betur :S
Mamma er að fara í sumarbústað um helgina, skemmtu þér vel. Eins og er lítur allt út fyrir að maður eigi eftir að kíkja á þau gömlu yfir helgina í dagsferð eða svo.
Rafá var að kaupa sér nýjan bíl, hef ekki séð hann svo að ég get ekki dæmt um hann eins og er, en þetta er amerískur sportbíll að nafni Dodge neon. Bíst passlega við að það sé verið að okra á honum í því eins og með Cellikuna. En oh well, ekki minn höfuðverkur. Hann vildi ekki hafa mig með til að skoða hann og meta þannig að hann má þá bara fá hitt í hausinn seinna meir ef út í það er farið.
Strákarnir eru komnir í sumarfrí af leikskólanum og eru að fara í útilegu með pabba sínum um helgina, þannig að ég get ekki hitt þá :cry: en ég sé þá reyndar aðeins á mánudaginn í staðinn því að svo eru þeir að far atil foreldra Ásu á þriðjudaginn og verða þar í eina viku. Eftir það koma þeir til mín í þrjár vikur.
Ég og Rafá erum bæði farin að vinna hér á Selfossi svo að við erum komin í íbúðina mína. 8)
Skrifa meira síðar er að spá í að fara bara að sofa og athuga hvort að ég nái ekki einhverju af þessu þunglyndi úr mér.
Bæó Jónsý

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 22:21:15 / nina

Í fréttum er þetta helst

Hvað segiði þá???
Þið eruð ljóta liðið ég bið um hjálp við að finna lag til að syngja á keppninni og fæ ekkert frá ykkur!!!! sussh,susssh ekki gott!!!
En alla vega ég söng Hey jude eftir Bítlana og gekk víst ágætlega miðað við hrósin. Seinna lagið mitt var frumsamin texti við undirspil af like a Virgin eftir Madonnu og voru góðar undirtektir frá salnum þá líka. Ég átti lag 1 og 8 í spilun og voru margir mjög stolltir af m´ðer fyrir að hafa þorað að byrja (eins og ég hafi átt einhvern kost í því) Við unnum reyndar ekki neitt en það er í góðu því þetta var mikið meira fyrir gamanið gert. Þónokkrir eru farnir að spurja mig hvort ég vilji ekki koma í hina og þessa kóra hérna í Þorlákshöfn, ég er svona að hugsa málið. Hef fram á haustið með að svara því. :)
En ekki er gamanið búið enn....
Einhvern veginn tókst mér að brjóta upp það sem var orðið nokkuð gróið af puttanum á mér svo að nú finn ég meira til en ég gerði og bíddu bíddu bíddu....
Verslunarstjórinn minn er puttabrotinn líka :lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol:
Opinbera sagan er sú að þegar hún var að labba heim þá rakst einhver svo heiftarlega í hana að hún datt og braut litla putta á hægri hendi (við erum svaka flottar hlið við hlið, ég teipuð saman á litla putta vinstra megin og hún í gifsi á litla putta hægra megin) við höfum verið spurðar hvort við vildum ekki skipta því að eins og alheimur veit að þá er ég afskaplega örfhent og hún er víst alveg jafn rétthent og ég örfhent svo að nú eru góð ráð dýr :D:D
Út í alvarlegri hluti...
Ég votta fjölskyldu Sonju frænku dýpstu samúð núna. En hún verður jörðuð á fimmtudaginn kemur.
Og við skiptum aftur....
Synir mínir eru að fara að útskrifast af leikskólanum á fimmtudaginn...8|8|8| Hver gaf þeim leyfi til að vera orðnir svona stórir getur einhver sagt mér það... þrátt fyrir að ég sé mjög sátt við það líka því að þeir eru orðnir svo yndislegir (meira að segja á erfiðu tímunum líka). En já, þeir byrja í skóla í haust svo nú fara stórir hlutir að ske, því það verður engin smá breyting í huga barna þegar þau byrja í skóla... man það svona óljóst hjá mér en ég var voða spennt ég man það... Þeir eru nú samt ekkert að gera neitt veður út af þesu og spurðu hvort að þeir mættu ekki byrja í skóla á næsta ári í staðinn :)
Veit ekki alveg hverju ég á að ljúga í viðbót að ykkur svo að ég er að hugsa um að hætta í bili svona áður en ég sofna því að þetta var ekki auðveldasti vinnudagurinn í heimi og ég hef lítið borðað og þess vegna soldið orkulítilen alla vega... Fer á Selfoss á morgun VVVVVVVVEEEEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIIIII!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! um leið og ég er búin að vinna.
Nína Pína út :o

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 22:32:38 / nina

Frá því síðast

Vá ég er búin að vera löt við þetta... þyrfti kannski að fara að bæta mig í þessu Frá því ég kvitaði síðast hefur lítið merkilegt skeð svo sem... Jú, Emil fór á sjóinn og líkaði sko ekki vel (thíhí aumingi... neinei, þetta á ekki við alla) honum var boðið að koma aftur en hann sagðist vera veikur. Hann er núna komin með vinnu í vatnframleiðslunni hér í Þorlákshöfn og byrjar á mánudaginn. Þegar við vorum að labba þaðan í morgun spurði hann mig hvort að þetta væri hrein vinna og það komin mikill ánægjusvipur á hann þegar ég sagði svo vera. Ég fór þarna fyrir rétt og það gekk allt í gúddí held ég bara... núna bíðum við bara eftir úrskurði og svona og þá ætti þetta að vera búið, vonandi... Ég er orðin laus við spelkuna tók hana af áðan má það formlega á morgun en ég þurfti að fara í sturtu og er eiginlega ekki að nenna að setja hana á mig fyrir eina nótt og taka hana aftur í fyrramálið. nú verð ég teipuð í nokkra daga meðan ég er að byrja að fá styrkinn aftur í puttan og svo er þetta alveg búið... Puttinn á mér er ansi lélegur eftir þeta allt saman en ég er þó komin með níu putta aftur sá tíundi kemur von bráðar... Ég er að fara á staffadjamm á laugardaginn sem endar svo á ráðhúskaffi hér í Þorlákshöfn í söngvarakeppni fyrirtækjanna hér á bæ. Hugsa að það verði voða gaman. Ég á að vera andlit Krónunnar og Anna verslunarstjóri og Elín aðstoðarverslunarstjóri ætla að vera dansarar. Hugsa að það komi eithvað voða skrítið út úr þessu því að ég á sem sagt að synjga tvö lög eitt á að vera svona "venjulegt" og svo ætlum við að semja eitthvað annað lag jafnvel við lagið hennar Silvíu nótt og vera þá með einhvern texta tengdan krónunni. Ef þið hafið hugmyndir þá endilega látið mig vita, allar vel þegnar!!!! Annars er ég bara búin að vera að vinna á fullu þessa vikuna hef verið að taka fullan vinnudag því það er mikið um veikindi og ég var til dæmis vaktstjóri í kvöld því að Maddý sem að er yfir kvöldvaktinni er veik greyið og þá er ég víst sú eina virðist vera sem get leyst hana af. Ég er sasmt alls ekki að kvarta ef það hefði ekki verið fyrir það að kallinn minn fór á Selfoss í kvöld að spila svo að núna sit ég ein heima og læt mér leiðast. Mikið ofboðslega er það leiðinlegt, sérstaklega þegar þetta er ekki manns eigið heimili... Hugsa að ég láti þetta gott heita núna, en mamma þar sem ég veit að þú ert farin ða kíkja endilega láttu vita í gestabókina eða athugasemdir. Nína Pína (eða puttalingur eins og allir hér kalla mig) út :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 18:05:38 / nina

Jæja, jæja

Dagurinn í dag byrjaði vel. Vaknaði og fór með Emil að sækja um vinnu. Virtist ekki ganga neitt allt of vel (fólk er ekkert voða bjartsýnt orðið á pólverja)
Lagaðist svo heldur þegar yfirmaðurinn frá Auðbjjörgu hringdi í mig og spurði hvort að hann myndi hafa áhuga á að fara á sjó, núna er hann hoppandi af gleði því að hann fer út í kvöld og verður á sjó í nokkra daga (sjáum til hvernig hann verður þega hann kemur í land aftur)
Mætti svo í vinnuna klukkan tólf en fór heim aftur rétt eftir eitt því að ég sló puttanum svo illa í að ég er að farast :(
Löggan hringdi líka í mig... ég á að mæta fyrir rétt á fimmtudaginn út af líkamsárásinni þarna í janúar sem Pétur var kærður fyrir, ég veit ekki hvaða gagn þeir telja að sé af mér því að ég man ekki neitt eftir þessu stundinni lengur en það er þeirra mál. Eva Hrund á líka að mæta og sömuleiðis Rafá því að hann er vitni fyrir Pétur svo að það verður partý uppi í Héraðsdómshúsi á fimmtudaginn klukkan 13
Ég skil samt ekki eitt, Heiðar lögga hirngdi í mömmu áður en hann hringdi í mig upp á vitnleiðsluna ég veit ekki hver hugsunin er á bakvið það eiginlega.
Hef eiginlega ekkert meira að segja í bili því að það hefur ekkert marktækt skeð síðan í gær... svo...
Nína út :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3